Skokkhópurinn af stað næsta þriðjudag
Þriðjudaginn 24. maí hefst sumarstarf skokkhópsins á Sauðárkróki þar sem Árni Stefáns hefur verið óþreytandi við að aðstoða fólk sem vill hreyfa sig á heilbrigðan hátt. Mæting er við sundlaugina og lagt af stað kl. 17:45.
-Allir þeir sem hafa áhuga á hollri hreyfingu og vilja koma sér eða halda sér í formi, vera í góðum félagsskap hjólandi, gangandi eða hlaupandi eru hvattir til að koma, segir Árni sem mun reyna að leiðbeina fólki áfram hvort sem það er að byrja eða er lengra komið í skokkinu.
Hlaupið er fjórum sinnum í viku og stendur tímabilið yfir í 14 vikur eða til 31. ágúst og kostar það kr. 15000 og fer þúsundkall af honum í styrktarsjóð Þuríðar Hörpu.
Allar upplýsingar veitir Árni Stefásson í síma 8463959.