Skora á sjávarútvegsráðherra að auka veiðiheimildir til þorskveiða

Frá Sauðárkróki. Mynd/BÞ
Frá Sauðárkróki. Mynd/BÞ

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar tekur undir sjónarmið stjórnar Landssambands smábátaeigenda sem hafa skorað á sjávarútvegsráðherra að auka veiðiheimildir til þorskveiða um 30 þúsund tonn. Þetta kemur fram í fundargerð Byggðarráðs sem birt hefur verið á vef Sveitarfélagsins. 

Á fundi Byggðarráðs í dag var lagt til kynningar bréf frá formanni Skalla, félagi smábátaeigenda, dagsett 11. mars 2016. Þar er kynnt ályktun stjórnar Landssambands smábátaeigenda frá fundi þann 4. mars 2016 þar sem skorað er á sjávarútvegsráðherra að auka veiðiheimildir til þorskveiða um 30 þúsund tonn. Úthlutað verði til strandveiða 2.000 tonnum og 28 þúsund tonn fari til skipa sem nýtt hafa þorskveiðiheimildir sínar með veiðum undanfarin þrjú ár.

„Byggðarráð tekur undir sjónarmið stjórnar Landssambands smábátaeigenda. Engum byggðakvóta var úthluta til Sauðárkróks á fiskveiðitímabilinu 2015/2016,“ segir loks í fundargerð

Fleiri fréttir