Skotfimifólk keppir fyrir USAH
Eins og fjallað hefur verið um hér á vef Feykis er 27. Landsmót UMFÍ haldið á Selfossi um helgina. Blaðamaður hafði samband við Eystein Pétursson. Framkvæmdastjóra USAH, og spurðist fyrir um þátttöku Austur-Húnvetninga í mótinu. „Því miður er þátttakan frá USAH ekki góð á þetta landsmót, en við stefnum á meiri fjölda á unglingalandsmótið, sagði Eysteinn.
„Við erum þó nú þegar með þrjá keppendur skráða að þessu sinni, að því er ég best veit, og eru þeir allir í skotfimi.“ Skotfimifólkið sem skráð er til leiks eru þau Guðmann Jónasson, Snjólaug M Jónsdóttir og Brynjar Þór Guðmundsson.