Skráning hafin fyrir Vinnuskóla Svf. Skagafjarðar

Skráning hófst fyrir helgi í Vinnuskóla Sveitarfélagsins Skagafjarðar og verður opið fyrir skráningu til og með 22. maí. Þeir árgangar sem geta skráð sig eru: ´02, ´01, ´00 og ´99. Vinna hefst mánudaginn 8. júní.

Á heimasíðu sveitarfélagins segir að fyrirkomulag vinnunnar sé eftirfarandi:

Árgangur ´02 getur unnið 2 vikur í sumar, frá og með 6. júlí (20 tímar á viku) og fær greiddar 370 kr./klst. Hlekkur á umsókn: http://nam.arskoli.is/limesurvey/index.php/71161/lang-is

Árgangur ´01 getur unnið 4 vikur í sumar ( 30 tímar á viku ) og fær greiddar 420 kr./klst. Hægt er að sækja um hálfan daginn. Hlekkur á umsókn: http://nam.arskoli.is/limesurvey/index.php/86634/lang-is

Árgangur ´00 getur unnið 6 vikur í sumar ( 30 tímar á viku ) og fær greiddar 500 kr./klst. Hægt er að sækja um hálfan daginn. Hlekkur á umsókn: http://nam.arskoli.is/limesurvey/index.php/11629/lang-is

Árgangur ´99 getur unnið 8 vikur í sumar og fær greiddar 630 kr./klst. Vinnutími er mismunandi eftir störfum en ekki meira en 6 tímar á dag. Hlekkur á umsókn: http://nam.arskoli.is/limesurvey/index.php/33446/lang-is

Daglegur vinnutími er 8.00 til 12.00 og 13.00 til 15.30 mán – fim,  en 8.00 til 12.00 á föstudögum.

Laun eru borguð út á 2 vikna fresti eða: 16. júní, 1. júlí, 15. júlí, 29. júlí og 12. ágúst.

Skráning fer fram rafrænt og er skráningu að finna á heimasíðu sveitarfélagsins og á Facebook-síðu Húss frítímans ( 8.-10. bekkur).

Fleiri fréttir