Skráning hafin í Sumar T.Í.M.
Sveitarfélagið Skagafjörður vill vekja athygli á því að skráning er hafin í Sumar T.Í.M. fyrir árganga 2004-2010 og lýkur skráningunni fimmtudaginn 2. júní nk. Leikjanámskeið hefst á Hólum 2. júní en Sumar T.Í.M. á Sauðárkróki 6. júní.
Ungmennafélagið Hjalti, í samvinnu við Sigurlaugu Rún Brynleifsdóttur, verður með leikjanámskeið á Hólum fyrir börn staðsett á Hólum, Hofsósi og nágrenni. Boðið verður upp á akstur frá Hofsósi. Námskeiðin byrja 2. júní og standa til 24. júní.
Á Sauðárkróki verða fjölmörg námskeið og æfingar í ýmsum íþróttagreinum í boðið, eða tæplega 30 talsins og er vonumst til að öll börn eigi eftir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Einhverjar breytingar hafa verið gerðar milli ára, sum námskeið dottið út, öðrum fjölgað og boðið upp á ný námskeið.
Eldri hópurinn, 4.-6. bekkur, fær nokkur ný og spennandi skapandi námskeið sem vonast er eftir að þau nýti sér. Eru það t.d. stuttmyndanámskeið, textílnámskeið, tískuteikning, hönnun og endurvinnsla, veggmálun og námskeið sem kallast Sauðárkrókur og umhverfið.
„Við vonumst eftir því að eiga gott sumar og erum spennt að byrja fjörið,“ segir m.a. í frétt á heimasíðu Húss Frítímans. Sumar T.Í.M á Sauðárkróki hefst 6. Júní og verða höfuðstöðvar í Árskóla. Allar nánari upplýsingar eru gefnar í Húsi Frítímans í síma 455 6109, hjá Völu Hrönn í síma 660-4633 eða gegnum netfangið sumartim@skagafjordur.is.