Skráningarfrestur Héraðsmót UMSS lengdur
Skráningarfrestur Héraðsmóts UMSS hefur verið lengdur til miðnættis þann 14. júní nk.
Það eru fjórir keppendur af sama kyni í hverri boðsundssveit og þarf hver keppandi að synda 50 m frjálst sund.
Héraðsmót UMSS þann 17. júní hefst kl.10.30 og upphitun kl.10:10. Nánari upplýsingar um mótið er að finna inni á tindastoll.is undir sund, varðandi keppnisgreinar og um Grettisbikarinn og Kerlinguna.
Síðasti skráningardagur er til miðnættis þann 14. júní nk. sund@tindastoll.is
Upplýsingar sem þarf að skrá: Nafn, kennitala og keppnisgrein.
Varðandi boðsundssveit: Nafn sveitar og nöfn og kennitölur liðsmanna.
Skilyrði er að keppendur séu með skráð lögheimili í Skagafirði og ekki skráðir undir öðru félagi.
Verðlaunaafhending fer fram á sundlaugarbakka og verðlaun fyrir flottasta búninginn/fylgihlutinn karla og kvenna.
Stjórn Sunddeildarinnar hlakkar til að sjá keppendur, bæjarbúa og aðra gesti hvetja sitt fólk.