Skrúðganga og söngur í gær
Leikskólakrakkarnir á Sauðárkróki tóku forskot á sæluna í gær og fóru fylktu liði í bæinn svo úr varð glæsileg 17. júní skrúðganga þó svo að vantaði einn dag upp á. Var gerður stans við austurvegg Arionbanka og sungið fyrir gesti og gangandi og fjölmennti starfsfólk Ráðhússins handan götunnar sem hlýddi á skemmtilegan söng barnanna.
Eftir að hafa sungið nokkur lög var haldið af stað aftur í Glaðheima og Ársali þar sem dagurinn var kláraður og eflaust mikil eftirvænting fyrir 17. júní gleði sem verður allsráðandi í bænum í dag.