SKVH mót og undirbúningur fyrir Stórsýningar Þyts 2012

Mikið verður um að vera í Þytsheimum á Hvammstanga næstu daga en SKVH mótið verður haldið þar nk. föstudag, þann 9. mars og undirbúningur og skoðun vegna Stórsýningar Þyts fer fram sunnudaginn 11. mars.

SKVH mótið hefst kl. 19 á föstudag en skráningar þurfa að berast fyrir kvöldið í kvöld (miðvikudagurinn 7. mars) á netfangið: sigrun@skvh.is. Einnig er hægt að skrá sig í síma 895-1147 og 660-5826. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts. Þar segir jafnframt að keppnisfyrirkomulagið á SKVH mótinu verði eftirfarandi:

„Keppt verður í fjórgangi: Keppnisfyrirkomulag: Tölt 1 hringur frjáls hraði, brokk 1 hringur, ½ hringur fet og 1 hringur hægt stökk. Barnaflokkur, Unglingaflokkur, 2. flokkur (áhugamenn) meira keppnisvanir og 2. flokkur (áhugamenn) minna keppnisvanir. Þríþraut. Einnig verður keppt í Barnaflokki: tvígangur, þar er riðinn 1 og ½ hringur tölt eða brokk og ½ hringur fet.“ 

Stórsýningar Þyts 2012

Undirbúningur og skoðun vegna Stórsýningar Þyts fara fram kl. 13 á sunnudaginn en þeir sem hafa hug á að vera með einstaklingsatriði og/eða hópatriði vinsamlegast hafið samband við Indriða í s. 8602056 eða Sverri s. 8935170 vegna frekari upplýsinga.

Dæmi um sýningaratriði:

  • Stóðhestar
  • Hryssur
  • Alhliðahross
  • Klárhross
  • Ræktunarbú
  • Annað

 

Fleiri fréttir