Skyggnilýsingafundur með Þórhalli miðli Í KVÖLD
Unglingaráð Tindastóls ó körfubolta stendur fyrir skyggnilýsingarfundi með Þórhalli miðli á Mælifelli, í kvöld mánudaginn 26. september kl. 20.30. Um fjáröflun fyrir unglingaráð er að ræða og kostar aðgangurinn aðeins 1500 krónur.
Þórhallur er landsþekktur miðill og hefur komið fram á mörgum skyggnilýsingafundum, verið með útvarpsþætti og er landsmönnum að góðu kunnur. Því miður verður ekki hægt að taka á móti greiðslukortum, þannig að fólk er beðið um að hafa með sér reiðufé.
Er það von unglingaráðs að bæjarbúar taki vel í þessa nýju fjáröflun og fjölmenni á áhugaverðan viðburð og styðji við barna- og unglingastarfið í leiðinni.