Skyrgerð í Varmahlíðarskóla
7. bekkur Varmahlíðarskólar fékk á dögunum óvenjulega kennslu en nemendunum var kennt að búa til skyr. Fór kennslan fram undir styrkri leiðsögn Ásdísar bekkjarkennara og með aðstoð Bryndísar heimilisfræðikennara. Ásdís kom með handsnúna skilvindu og mjólkina fengum nemendur frá Flugumýri.
Byrjað var á að hita mjólkina, síðan farið í að skilja. Skildir voru 20 l af mjólk og fengust 18 l af undanrennu og 2 l af rjóma. Gert var skyr úr 18 l og fengust rúmlega 4 kg af skyri og 11,5 l af mysu.
Daginn eftir var skyrið tilbúið og fengu allir að smakka skyr í morgunmatnum, sem tókst alveg frábærlega vel og góða mysu að drekka með. Nemendur tóku myndir