Slæmt ásigkomulag vega í Húnaþingi vestra hefur slæm áhrif á nemendur

Slæmt ástand vegarins fyrir Vatnsnesið. Mynd: ruv.is/Valgeir Örn Ragnarsson
Slæmt ástand vegarins fyrir Vatnsnesið. Mynd: ruv.is/Valgeir Örn Ragnarsson

Tæplega helmingur nemenda Grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga þurfa að ferðast í skólann við óviðunandi aðstæður. 150 nemendum eru við skólann og þurfa sumir þeirra að sitja í skólabíl í allt að tvo klukkutíma á dag á misgóðum malarvegum. Grunnskólakennararnir segjast kvíða því að þurfa að hefja enn eitt skólaárið án þess að samgöngur í sveitarfélaginu hafi verið bættar.

Ríkisútvarpið fjallaði um málið fyrr í vikunni en þar kemur fram að kennararnir séu uggandi yfir ástandi þessara nemenda þegar þeir mæta í skólann. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir, námsráðgjafi við Grunnskóla Húnaþings vestra, segir að starfsmenn skólans hafi miklar áhyggjur af því hvernig nemendur verða í stakk búnir til að takast á við námið er þeir mæta í skólann, ef vegir verða í jafn slæmu ásigkomulagi eins og þeir verða oft á haustin.

Miklar framkvæmdir eru nú yfirstandandi við grunnskólann á Hvammstanga þar sem 1200 fermetra viðbygging mun gera kleift að sameina starf grunnskóla og tónlistarskóla á einum stað. Er sú framtíðarhugsun ekki í samræmi við það sem nemendur og kennarar þurfa að búa við í samgöngum, en aksturstími þeirra nemenda sem þurfa að fara fyrir Vatnsnesið lengist um 40 mínútur á dag sökum þess hversu slæmur vegurinn er. „Ítrekað hefur verið kvartað yfir ástandi vegarins,“ segir Guðrún. „Börn hafa komið bílveik og illa haldin í skólann eftir ferðir um veginn með skólabílnum.“ Vegirnir hafa oft verið í það slæmu ásigkomulagi að það var hreinlega ekki hægt að keyra þá og hafa foreldrar jafnvel rætt það að hætta að senda börnin í skólann við þessar aðstæður.

Endurbætur á Vatnsnesvegi eru á þriðja tímabili samgönguáætlunar og hefjast samkvæmt því ekki fyrr en 2030. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, segir afar brýnt að færa veginn framar í áætluninni. „Og við erum að sjá það núna að krakkar sem eru að byrja í fyrsta bekk, muni öll þessi tíu ár sem þeir eru í grunnskóla vera á ónýtum vegi ef við fáum veginn ekki framar í áætlun.“

/SHV

 

Fleiri fréttir