Sláturtíð komin á gott skrið

Mikið er um að vera hjá Kjötafurðastöð KS um þessar mundir en rúmar þrjár vikur eru liðnar af sláturtíð.

Samkvæmt heimasíðu Kaupfélags Skagfirðinga eru sláturfjárloforðin komin hátt í 97 þúsund. Fyrstu tvær vikurnar höfðu rúmlega 19.500 fjár verið verið slátrað  og var meðalþyngd dilka á þessu tímabili 16,22 kg en á sama tíma í fyrra var meðalþyngdin svipuð og nú eða 16,03 kg.

Fleiri fréttir