Smábátahöfnin á Króknum tekur á sig mynd

Nú er unnið að því að leggja lokahönd á smábátabryggjuna á Sauðárkróki. Veið er að leggja flotbryggjurnar tvær en önnur er 80 metra löng með sjö 12 metra löngum fingrum og hin 60 metra með átta 8 metra fingrum og tíu 6 metra fingrum.

Ljóst er að aðstaða smábátasjómanna á Króknum batnar til muna en á gömlu bryggjunni er algengt að tveir og þrír bátar séu spyrtir saman við hvert legupláss en nú hafa eigendur smábáta þegar dregið um hvar bátar þeirra verða bundnir í framtíðinni.

Ljósmyndina tók Haraldur Arason útgerðarmaður á Þórði kakala SK-30.

Fleiri fréttir