Smáframleiðsla matvæla, matarhandverk og Slow food á Sveitasetrinu Hofsstöðum

Á morgun verður haldinn fræðslu- og upplýsingafundur um smáframleiðslu matvæla, matarhandverk og Slow food á Sveitasetrinu Hofsstöðum, frá kl. 15-17. „Ég held að það séu margir sem eru áhugasamir og sem langar að að fara af stað með smáframleiðslu matvæla en vantar kannski samstarfsfélaga eða að vita hvert á að leita,“ segir Laufey Kristín Skúladóttir verkefnastjóri hjá Svf. Skagafirði og Matarkistu Skagafjarðar.

„Það var auglýst nóvember í Sjónhorninu eftir áhugasömum aðilum og þetta er ætlað sem fyrsti fundurinn með þessu fólki en allir eru velkomnir,“ segir Laufey í samtali við Feyki.

Dominique Plédel ætlar að kynna Slow Food hreyfinguna en henni er best lýst svo að í kjölfar hraðrar útbreiðslu „fast food“ byltingarinnar spratt upp félagsskapur í Evrópu sem nefnist „Slow Food“.

Á heimasíðu Slow Food Reykjavík segir að megin markmið Slow Food er að auka meðvitund fólks um mikilvægi matarmenningar, þekkingar, hefðar og landfræðilegs uppruna matvæla. Einkunnarorð samtakanna eru Góður, hreinn og sanngjarn, og er þar átt við að maturinn eigi að bragðast vel, hann eigi að vera laus við aukaefni og sem náttúrulegastur, og sanngjarn á þann hátt að sá sem framleiðir matinn fái sanngjarnt verð fyrir vinnu sína og afurðir.

Hafsjór af fróðleik

rabarbari_1Á fundinum mun Guðný Vésteinsdóttir fjalla um fyrirtækjarekstur í smáframleiðslu matvæla. Ásamt því að reka Sveitasetrið á Hofstöðum hefur hún rekið fyrirtækið Holt og heiðar, í samstarfi við vinkonu sína, með góðum árangri og segir Laufey hana vera hafsjó af fróðleik.

Þær eru aðallega starfandi austur á héraði og eru að framleiða m.a. birkisýróp, rabbabarasultu með vanillu, þær tína sveppi og eru að nýta birkiskógana. Það er búið að vera mikill gangur í þessu hjá þeim og okkur langar að kynda undir með fólki að gera samskonar hluti hér,“ útskýrir Laufey.

„Það eru þessi nýju hlutverk og nýju áherslur sem okkur í stjórn Matarkistunnar langar að styðja við. Það eru einhverjir í startholunum og langar að fara af stað í eigin framleiðslu en mikið reglugerðarfargan og getur aftrað fólki fyrir það fyrsta og einnig kostnaðurinn við að koma sér af stað.

Við hjá Matarkistunni viljum vita hvernig við getum aðstoðað fólki við að taka þetta skref; Hvað er það sem fólki vantar? Getum við haldið námskeið og hvernig námskeið er þá einna helst þörf á? Vantar fólki aðstöðu, fræðslu eða ráðgjöf? Þetta verður vonandi allt rætt,“ útskýrir Laufey, en markmiðið segir hún jafnframt að leiða þessa aðila saman svo þeir geti deilt þekkingu sinni og reynslu og haft stuðning hvort af öðru.

„Vonandi geta sem flestir tekið daginn frá og verið með okkur á Hofsstöðum,“ segir Laufey að lokum.

Fleiri fréttir