Snæfell mætir í Síkið í kvöld
Tindastóll tekur á móti Snæfelli í Lengjubikarnum í kvöld kl. 19:15 í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Að litlu er að vinna bikarsins vegna en allt fyrir heiðurinn.
Það hefur ekki gengið allt í haginn fyrir Tindastólsmenn á þessu keppnistímabili og ýmislegt gengið á, eins og menn vita. Einn sigur í höfn, sem var sætur en ekki sjálfgefinn. Nú þurfa menn að rífa sig upp og spila eins og þeir eiga að geta því mikið eiga þeir inni. Bárður hefur staðið í ströngu í að fá liðsmenn til að berjast eins og ljón og þá sem fá borgað til að vinna fyrir kaupinu sínu. Allir hvattir til að mæta í kvöld og öskra liðið í gang.