Snæfell marði sigur í háspennuleik í Síkinu
Það vantaði ekki dramatíkina þegar Snæfell sótti Stólana heim í Iceland Express-deildinni í kvöld. Lengstum var leikurinn þó lítið augnayndi og heimamenn virkuðu hálf áhugalausir framan af. En lokamínúturnar voru engu líkar og mátti minnstu muna að Stólarnir næðu að stela sigrinum en jafnt var í leikslok og þurfti því að framlengja. Óskar Hjartarson tryggði gestunum sigurinn þegar hann hitti úr seinna víti sínu þegar 4 sekúndur voru eftir en þrátt fyrir gott færi tókst Mo Miller ekki að tryggja sigurinn á síðustu sekúndu leiksins og gestirnir fóru því glaðbeittir heim eftir sætan sigur, 99-100.
Lið Snæfells byrjaði leikinn betur og komst í 10-0 áður en Helgi Rafn náði að setja niður fyrstu stig Stólanna. Byrjunarliðið var skipað þeim Helgum ásamt útlendingatríóinu Miller, Allen og Luttman. Luttman er 210 sm á hæð en það varð fljótt ljóst að hann gerði lítið annað en að auka meðalhæð Stólanna. Það var helst Miller sem virtist leika að eðlilegri getu í fyrsta leikhluta en að honum loknum höfðu gestirnir yfir, 17-24. Þeir náðu síðan 12 stiga forystu fljótlega í öðrum leikhluta og um miðjan leikhlutann komust þeir í 14 stiga forystu, 27-41. Stólarnir náðu upp ágætri vörn síðustu mínúturnar fyrir hlé og náðu að saxa á forskotið, staðan 36-42 í leikhléi.
Þriðji leihluti var jafnari og yfirleitt munaði þetta 6-10 stigum á liðunum. Troðsla frá Curtis Allen náði að kveikja aðeins í stuðningsmönnum Stólanna og síðan fann Svabbi fjölina sína og setti niður 3ja stiga skot. En í leik heimamanna skorti á köflum aga og eftir ágætar rispur virtust menn detta í kæruleysisgírinn og Snæfellingar gengu á lagið. Að loknum 3ja leikhluta var staðan 59-71 og stuðningsmenn Stólanna orðnir vondaufir og það virkuðu leikmenn Tindastóls líka því fyrstu mínútur fjórða leikhluta jókst munurinn og þegar 5 og hálf mínúta var eftir af leiknum setti Jón Ólafur Jónsson niður tvö víti og staðan orðin 62-78. Þetta reyndust vera síðustu stig hans í leiknum því í næstu sókn braut hann á Rikka og fékk sína fimmtu villu. Í kjölfarið riðlaðist leikur gestanna og Stólarnir náðu á næstu tveimur mínútum að minnka muninn í 5 stig, en Rikki setti niður þrist og staðan 73-78. Helgi Rafn setti niður 2 víti en Hankins-Cole svaraði með rosalegri troðslu. Rikki setti niður annan þrist þegar 90 sekúndur voru eftir og staðan 78-80 og síðan gekk hvorki né rak hjá liðunum fyrr en Rikki setti niður þriðja þristinn á skömmum tíma þegar um 4 sekúndur voru eftir. Þar með voru heimamenn komnir yfir í fyrsta skiptið í leiknum. Snæfell tók boltann inn og Sheldon Hall brunaði upp völlinn en að mati dómaranna var brotið á honum við miðlínu og hann fór á vítalínuna þegar innan við sekúnda var eftir. Nú var að sjálfsögðu allt orðið vitlaust í Síkinu og reyndi á taugarnar. Sheldon Hall setti fyrra vítið niður og jafnaði 81-81 en kappinn klikkaði á seinna vítinu og því þurfti að framlengja.
Framlengingin var spennandi allan tímann en Snæfell náði yfirhöndinni í byrjun. Nú var mikill hraði í leiknum og talsverðar sviptingar. Stólarnir breyttu stöðunni úr 85-87 í 90-87 með körfum frá Curtis Allen (3) og Þresti Leó. Hankins-Cole jafnaði með þristi og þegar 90 sekúndur voru eftir af framlengingu setti Hafþór Ingi Gunnarsson niður þrist fyrir Snæfell og kom þeim yfir, 94-95. Hankins-Cole, sem var magnaður af vítalínunni, setti niður tvö víti og jók muninn í 3 stig en Miller minnkaði muninn í eitt stig þegar rétt rúm mínúta var eftir. Curtis Allen komst á vítalínuna og setti seinna skotið sitt niður og jafnaði en Sheldon-Hall fékk enn og aftur tvö vítaskot og setti bæði niður, staðan 97-99. Þröstur Leó jafnaði síðan með tveimur vítaskotum þegar 7 sekúndur voru eftir og allt á suðupunkti. Óskar Hjartarson plataði Miller til að brjóta á sér þegar 4 sekúndur voru eftir og hann klikkaði á fyrra skoti sínu en setti það seinna niður þrátt fyrir að þakið á Síkinu rifnaði nánast af í látum áhorfenda. Tindastólsmenn brunuðu í sókn og Miller var kominn í gegnum vörn Snæfells og var við það að troða boltanum í körfu Snæfells þegar Sheldon-Hall náði að verjast honum án þess að brjóta á Miller að mati dómaranna og gestirnir af Snæfellsnesi fögnuðu gríðarlega um leið og leiktíminn rann út. Lokatölur 99-100 og áhorfendur í Síkinu hreinlega furðu lostnir í lokin.
Sem fyrr segir var leikur Tindastóls lengstum dapur en leikmenn gáfu allt í þetta á lokamínútunum og voru í raun óheppnir að taka ekki stigin þegar upp var staðið. Breska tilraunin gekk ekki upp í kvöld og var leikur Tindastóls slakur þegar Luttmans naut við. Helgi Rafn og Rikki voru gríðarlega öflugir á lokin og það virkar oft skrítið að ekki sé meira spilað upp á að opna fyrir Rikka - kallinn veit alveg hvar karfan er. Tveir leikmenn hafa komið inn í liðið síðustu vikurnar og nú þarf að ná jafnvægi í spil liðsins. Það má kannski segja að leikurinn í kvöld hafi tapast á vítalínunni en 11 víti fóru í súginn hjá Stólunum (61%) á meðan gestirnir klikkuðu aðeins á 5 í 30 tilraunum (83%). Í liði Snæfells var Hankins-Cole seigur og gerði 26 stig og þar af 12/13 úr vítum og þá var Jón Ólafur að venju ótrúlega drjúgur þrátt fyrir að hafa oft leikið betur. Miller átti fínan leik hjá Stólunum og var með 19 stig, 11 fráköst og 11 stoðsendingar.
Stig Tindastóls: Helgi Rafn 22, Miller 19, Allen 19, Rikki 14, Þröstur 11, Svabbi 10, Luttman 2 og Hreinsi 2.