Snæfellingar voru sterkari á endasprettinum

Tindastóll heimsótti Snæfellinga í Stykkishólm í gærkvöldi í baráttuleik en bæði lið gerðu tilkall til sjötta sætis í Iceland Express deildinni. Með sigri hefðu Stólarnir tryggt sér sæti í úrslitakeppninni en tap varð staðreynd eftir að Snæfell átti góðan endasprett í leiknum og því eru Stólarnir ekki enn öruggir inn í úrslitakeppnina. Lokatölur í Hólminum voru 89-80.

Lið heimamanna var sterkara framan af leik, þeir voru yfir 20-17 eftir fyrsta leikhluta og 45-39 í hálfleik. Mest náði Snæfell 13 stiga forystu í öðrum leikhluta en Tindastólsmenn áttu ágætan kafla fyrir hlé og söxuðu aðeins á forskotið.

Snæfell hóf þriðja leikhluta ágætlega og voru yfir 58-46 þegar fjórar mínútur voru liðnar. Stólarnir gerðu sér lítið fyrir og gerðu næstu 11 stig og minnkuðu muninn í eitt stig og næstu mínútur var allt í járnum. Miller jafnaði síðan leikinn fyrir Tindastól og staðan 61-61 þegar fjórði leikhluti hófst. Fyrstu fjórar mínútur leikhlutans voru æsispennandi og munurinn sjaldnast nema 1-3 stig. Annar kana heimamanna, Quincy Hankins-Cole, fékk sína fimmtu villu þegar sex mínútur voru eftir og þegar fimm mínútur voru eftir kom Miller Stólunum í 67-72 og staða Tindastóls orðin álitleg. Þá sögðu heimamenn hingað og ekki lengra. Marquis Sheldon Hall tók leikinn í sínar hendur og síðustu fimm mínútur leiksins gerði Snæfell 22 stig en Stólarnir aðeins 8.

Curtis Allen var atkvæðamestur í liði Tindastóls, gerði 28 stig og tók 7 fráköst, og Miller var með 20 stig. Aðrir leikmenn voru ekki að finna fjölina sína og var 3ja stiga nýting Stólanna ekki til að hrópa húrra fyrir, 5 skot niður í 24 tilraunum. Igor Tratnik tók 9 fráköst en hitti ekki í körfuna nema af vítalínunni.

Tindastóll mætir Njarðvík í Síkinu næstkomandi fimmtudag en þá verður spiluð síðasta umferðin í Iceland Express deildinni. Liðin hafa verið að berjast um að komast inn í úrslitakeppnina og ljóst að liðið sem sigrar er öruggt þangað inn. ÍR gæti stolið sæti í úrslitakeppninni af öðru hvoru liðinu en þá þarf ansi margt að falla með þeim, þeir mæta Keflavík úti í kvöld og fá KR í heimsókn í síðustu umferðinni. Það er því ekkert annað í stöðunni en að fjölmenna í Síkið á fimmtudaginn og styðja Tindastólsmenn til sigurs.

Stig Tindastóls: Allen 28, Miller 20, Helgi Freyr 7, Hreinsi 6, Þröstur 6, Helgi Rafn 6, Tratnik 4 og Rikki 3.

Fleiri fréttir