Snjóflóð féll á Siglufjarðarveg

Snjóflóð féll á Siglufjarðarveg og er vegurinn því lokaður frá Hrauni í Fljótum að Siglufirði. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni féll flóðið Siglufjarðarmegin við strákagöng, nánar tiltekið á Ströndinni fyrir þá sem til þekkja. Ákveðið hefur verið í samráði við snjóflóðaeftirlitsmann að hefja mokstur. 

Samkvæmt Vegagerðinni liggur ekki nákvæmlega fyrir hvenær snjóflóðið féll um er að ræða nokkur flóð. Starfsmaður Vegagerðarinnar hætti við að ryðja veginn þegar hann sá að flóð hafði fallið þar í nótt.

Fleiri fréttir