Snjómagnið minnkar í Fljótum
feykir.is
Skagafjörður, Lokað efni
04.06.2025
kl. 12.01

Eins og sést þá var töluverður snjór kominn í Fljótum í gær. Þessi mynd er tekin við bæinn Hvamm sem stendur talsvert hátt og snjór að líkindum meiri þar en víðast hvar. MYND: HALLDÓR GUNNAR
„Það hefur aðeins lagast, fimm stiga hiti og rigning. Það hefur minnkað töluvert snjómagnið síðan í gær,“ sagði Halldór Gunnar bóndi á Molastöðum þegar Feykir fylgdi eftir fréttinni frá í gær þar sem fram kom að bændur í Fljótum hefðu allir sótt fé sitt og komið á hús, enda jörð komin undir snjó í þessu norðanskoti sem enn stendur yfir.