Snjómokstur í Skagafirði
feykir.is
Skagafjörður
13.12.2019
kl. 15.01
Snjómokstur er trúlega ofarlega í hugum margra þessa dagana. Á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar er í dag rifjað upp með íbúum hvernig snjómokstri í héraðinu er háttað. Þar segir:
- Vegagerðin sér alfarið um mokstur á þjóðvegi 1, Sauðárkróksbraut, Þverárfjallsvegi, Siglufjarðarvegi frá Sauðárkróksbraut og frá Siglufjarðarvegi heim í Hóla sem eru mokaðir daglega.
- Vegagerðin sér einnig alfarið um mokstur á Siglufjarðarvegi frá þjóðvegi 1 að Sauðárkróksbraut sem er mokaður sunnudaga, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga og Skagafjarðarvegi frá þjóðvegi 1 að Héraðsdalsvegi sem er mokaður mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
- Vegagerðin aðhefst ekkert í snjómokstri á öðrum vegum fyrr en samþykki sveitarfélagsins liggur fyrir. Auglýsingu um sjómokstur má nálgast hér á heimasíðunni. Íbúum er bent á að hafa samband við tengiliði en þeir hafa umboð til að panta snjómokstur.
- Sveitarfélagið greiðir fyrir tvo mokstra á heimreiðum á ári.
Þar má einnig sjá auglýsingu um snjómokstur.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.