Snorra Evertssyni þakkað framlag sitt til mjólkurvinnslu

Á mánudaginn færði stjórn KS Snorra Evertssyni, f.v. samlagsstjóra hjá Mjólkursamlagi KS, Íslandsatlas með skrautritaðri kveðju, sem sérstakar þakkir fyrir mikilvægt framlag sitt við að auka og efla mjólkurframleiðslu og mjólkurvinnslu. Var tilefnið 80 ára afmæli samlagsins.
Snorri hóf störf hjá samlaginu frá 1959. „Ég byrjaði að vinna þarna fermingarárið mitt og var þá meðal annars að tæma brúsana,“ sagði Snorri þegar blaðamaður Feykis lagði leið sitt í samlagið til að smella af myndum í tilefni þessara tímamóta.
Snorri vann síðan hjá Samlaginu í fimm ár, þar til hann fór til náms í mjólkurfræði í Noregi. Hann kom aftur á Sauðárkrók árið 1967 og starfaði hjá samlaginu æ síðan. Frá árinu 1983 var hann samlagsstjóri í 30 ár, en hefur þó verið viðloðandi síðan hann lét formlega af störfum fyrir tveimur árum.