Söfnuðu rúmum tíu þúsund krónum

Svanbjört Hrund Jökulsdóttir, Katrín Sif Arnardóttir og Tinna Björg Jóhannsdóttir söfnuðu 10.348 krónum á tombólu sem þær héldu við Skagfirðingabúð og Hlíðarkaup á Sauðárkróki og afhentu Rauða Krossinum í Skagafirði. 

„Stuðningur tombólubarna er ákaflega mikils virði og fara peningar sem þannig safnast til að styrkja hjálparstarf fyrir börn. Félagið þakkar þessum ungu sjálfboðaliðum fyrir dugnaðinn,“ segir í fréttatilkynningu.

Fleiri fréttir