Söfnun fyrir Írisi Emmu
Hafin er söfnun vegna lítillar stúlku, Írisar Emmu, sem fæddist fyrir tímann þann 17. desember sl. og hefur háð mikla baráttu fyrir lífi sínu. Foreldrar stúlkunnar eru Hrönn Sveinsdóttir, dóttir bakarahjónanna Sveins Benónýssonar og Svövu Lilju Magnúsdóttur í Brauð- og Kökugerðinni á Hvammstanga, og Þorsteinn Árni Þóruson. Þau hafa verið búsett í Danmörku þar sem Hrönn stundar nám og Þorsteinn sækir atvinnu.
Á Norðanátt segir að litla stúlkan kom í heiminn á 27. viku meðgöngu en settur fæðingardagur var 15. mars. Hún vó 965 gr eða tæpar fjórar merkur.
„Henni var gefið nafn strax við fæðingu, Íris Emma heitir litla hetjan. Hún var skírð á aðfangadag vegna lífshættu sem stafaði að henni vegna sýkingar og um jólin tók við mikil barátta Írisar Emmu, foreldra hennar og læknateymis. Fór svo að annan dag jóla var hún flutt til Óðinsvéa þar sem hún gekk undir mikla aðgerð. Íris Emma er enn á spítala þar sem hún dafnar og vex og er hvert skref, skref fram á við. Íris Emma hefur, eins og sjá má, verið mikið veik en er nú komin upp í fæðingarþyngd,“ segir á Norðanátt.
Mikil röskun hefur verið á heimilislífi ungu hjónanna, menntun og sérstaklega vinnu en fyrir eiga þau 2 ára stúlku, hana Þóru Lilju. Þau hafa þurft að fjármagna ferðakostnað og standa undir alls kyns ófyrirsjáanlegum útgjöldum sem lítil og ung fjölskylda á erfitt með að standa straum af.
Vonast er til þess að með söfnun sé hægt að gera þeim lífið eilítið áhyggjulausara. Margt smátt gerir stóra hluti þegar margir taka sig saman. Þeir sem vilja leggja litlu fjölskyldunni lið þá er reikningsnúmerið 565-26-264 og kt. 290584-2999.