Sögufélag Skagfirðinga gefur út Grasahnoss

Í vor kemur út hjá Sögufélagi Skagfirðinga bókin Grasahnoss, sem er minningarrit um hjónin Rögnu Ólafsdóttur (1944-2011) og Ögmund Helgason (1944-2006). Heiti bókarinnar er sótt í Dalvísur Jónasar Hallgrímssonar, en Gísli Magnússon, Hjalti Pálsson, Sigurjón Páll Ísaksson og Sölvi Sveinsson hafa umsjón með útgáfunni.

Heiti bókarinnar er sótt í Dalvísur Jónasar Hallgrímssonar; en annað erindi kvæðisins hefst svo:

Gljúfrabúi, gamli foss!
gilið mitt í kletta þröngum!
góða skarð með grasahnoss!
gljúfrabúi, hvítur foss!

Efni bókarinnar er á þessa lund, en hún er rúmlega tvö hundruð blaðsíður:

Helga Ögmundardóttir: Örfá minningarorð.

Berglind Gunnarsdóttir: Minning Ögmundar Helgasonar.

Eiríkur Þormóðsson: Ferðir um Kjöl á 18. og 19. öld.

Guðjón Friðriksson: Grímsstaðaholt og nágrenni. Vísir að byggðasögu.

Gunnar Stefánsson: Fardagaskáldið.

Hannes Pétursson: Skotmaður á Skaga.

Hjalti Pálsson frá Hofi: Skaðaveður. Staðbundin minning frá ofviðrinu 2. febrúar 1956.

Kristján Eiríksson: Með Staðaröxl á bakinu.

Magnús H. Helgason: Alltaf spretta sumarblóm á vorin. Í minningu Halldórs Halldórsson skósmiðs á Sauðárkróki.

Páll Sigurðsson: Ein dagstund og afleiðingar hennar.

Rósa Þorsteinsdóttir: Jón Árnason þjóðsagnasafnari og heimildarfólkið hans.

Sigurjón Björnsson: Myndir úr hugskoti.

Sigurjón Páll Ísaksson: Brúðkaupið á Miklabæ 2. september 1881.

Sjöfn Kristjánsdóttir: Af gulnuðum blöðum í skældum skræðum úr Breiðafirði.

Smári Geirsson: Hvalabóndinn á Sveinsstaðaeyrinni.

Sölvi Sveinsson: Dettifosskvæði. Drög að rammaáætlun?

Þórgunnur Snædal: „Með liðnum tíma lúasporum fækkar.“ Jóhanna Magnúsdóttir.

Þeim sem vilja minnast þeirra hjóna gefst kostur á að skrá nafn sitt á Tabula memorialis sem verður prentað að upphafi bókar. Hægt er að skrá sig í netfanginu saga@skagafjordur.is og þarf þá að gefa upp nafn, heimilisfang og kennitölu greiðanda og nafn sem skrá skal í tabúlu; ef hjón eru bæði skráð þarf að tilgreina nöfn beggja. Skráningarfrestur er til 10. apríl. Greiðsluseðill mun birtast í heimabanka. Ritið kostar 5.500 kr. að meðtöldum póstkostnaði.

Fleiri fréttir