Söngvakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra 2012

Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra verður haldin í Félagsheimilinu Hvammstanga á morgun, laugardaginn 21. janúar kl. 14:00. 

Hljómsveitin Wildberry frá Hvammstanga ber heiðurinn af undirbúningi nemenda og tónlistarflutningi á keppninni. Wildberry hefur verið starfandi í allnokkurn tíma og tók m.a. þátt í Músíktilraunum 2006. Hana skipa fjórir fjörugir félagar, þeir Ásgeir, Kristinn, Birkir og Andri.

Aðgangseyrir er 1500 kr. og allur ágóði rennur í ferðasjóð nemenda. Athugið að ekki er hægt að greiða með kortum.

Fleiri fréttir