Söngvarakeppni Húnaþings á morgun
Söngvarakeppni Húnaþings vestra verður haldin í Félagsheimilinu Hvammstanga annað kvöld, laugardaginn 9. apríl. Húsið opnar kl. 20:00 og keppnin sjálf hefst kl 20:30. Samkvæmt Norðanáttinni hefur Magnús Elíasson tekið að sér að vera kynnir á söngvarakeppninni og dómnefndina í ár skipa þær Halldóra Sigtryggsdóttir, Helga Hrund Bjarnadóttir og Rósa Hrönn Árnadóttir.
Eftir keppnina tekur við hljómsveitin Von ásamt Magna og skemmtir gestum til kl 03:00. Heyrst hefur að áður en að ballið hefst, og að lokinni keppninni, þá muni eitthvað óvænt stíga á stokk.
18 ára aldurstakmark er á keppnina þar sem vínveitingasala verður á staðnum.
Aðgangseyrir er 3.500 kr fyrir keppni og ball en viljirðu sleppa því að dilla þér undir tónum Magna þá færðu 500 kr. endurgreitt við útgöngu (áður en ballhljómsveit byrjar að spila) Ef einhverjir vilja bara skella sér á ball þá er það 2500 kr.
Generalprufan verður sama dag kl 14:00 og er aðgangseyrir 700 kr. Börn á grunnskólaaldri fá frítt inn á generalinn í boði Landsbankans.