Sparisjóður Skagafjarðar styrkir Sögusetur íslenska hestsins

Á laufskálaréttardaginn, laugardaginn 24. september hafa fulltrúar Sparisjóðs Skagafjarðar og Söguseturs íslenska hestsins mælt sér mót í Kolbeinsdal sem er afrétt Hóla- og Viðvíkurhreppa hinna fornu. Tilefnið er að Sparisjóður Skagafjarðar hefur ákveðið að styðja við rekstur Sögusetursins.

 

Viðeigandi  þykir að undirrita samninginn í Kolbeinsdalnum en þar var Sparisjóðurinn stofnaður fyrir liðlega hundrað árum og síðar fluttur á klakki niður í Hólahrepp. Búast má við að líflegt verði í dalnum á morgun við undirritunina en þá mun her manna reka stóðið úr Kolbeinsdalnum til Laufskálaréttar. Samningurinn skiptir miklu máli fyrir Sögusetrið og eru forsvarsmenn þess afar þakklátir fyrir stuðninginn.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir