Sparisjóðurinn gaf nýjar skákklukkur
Í tilefni af Íslenska skákdeginum 27. janúar, sem jafnframt er afmælisdagur Friðriks Ólafssonar fyrsta stórmeistara Íslendinga í skák, hefur Skákfélagi Sauðárkróks borist höfðingleg gjöf frá Sparisjóði Skagafjarðar - 6 stafrænar skákklukkur.
Klukkurnar munu koma í góðar þarfir, enda nú til dags farið að tefla með tímamörkum sem venjulegum tímamælum er ómögulegt að framkvæma. t.d. að bæta við tíma við hvern leik. Klukkurnar voru vígðar á meistaramóti félagisns sem hófst í gærkvöldi í Safnahúsinu á Sauðárkróki.
Alls eru 9 skákmenn skráðir til leiks, þar af 2 fulltrúar Siglfirðinga, þeir Sigurður Ægisson og Jakob Sævar Sigurðsson, sem fer mikinn í skákmótum Norðanlands nú um stundir. Úrslitin úr fyrstu umferðinni bera með sér að mótið verði mjög jafnt. Hart var barist í fyrstu umferðinni og komið vel framyfir miðnætti þegar flestir stóðu upp frá tafli.
Í fyrstu umferð sigraði Hörður Ingimarsson, Jón Arnljótsson. Guðmundur Gunnarsson sigraði Unnar Ingvarsson. Jakob Sævar Sigurðsson sigraði Þór Hjaltalín og Sigurður Ægisson sigraði Birki Má Magnússon. Einar Örn Hreinsson sat hjá í fyrstu umferð.
Önnur umferð verður tefld að viku liðinni.