Spennandi fyrirlestrar og kvöldverður fyrir hestaáhugafólk
Dagana 24.-26.10. stendur yfir á Hólum undirbúningsfundur í verkefninu Riding Native Nordic Breeds, sem er styrkt af NORA. Fulltrúar Hólaskóla í verkefninu eru Guðrún Helgadóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir. Af þessu tilefni munu tveir úr verkefnisstjórninni verða með stutta fyrirlestra í kvöld 24. október í stofu 205. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir.
19:30-20:00 Dr. Rhys Evans dósent við Högskulen for lantbruk og bygdenæring á Jären, Noregi: The equine sector in the rural economy.
20:10-20:40 Anna Louisa Joensen forsvarsmaður félagsins Foroyska Rossid kynnir færeyska hestinn og þá vinnu sem nú stendur yfir við að varðveita færeyska hestakynið en kynið telur nú innan við 60 hross.
Veitingahúsið Undir Byrðunni býður upp á kvöldverð kl. 18.00. Í boði verður dýrindis kjöt í karrý. Verð kr. 1500.
Þetta er tilvalið tækifæri til að eiga notalega kvöldstund á Hólum yfir málsverði og áhugaverðum kynningum og umræðu.