Spennandi konukvöld framundan

Konukvöld Capello verður haldið á skemmtistaðnum Mælifelli á Sauðárkróki á morgun kl. 20 en þar mun vera á ferðinni frábær skemmtun fyrir konur á öllum aldri eins og segir í tilkynningu. Veislustjóri verður hin kynngimagnaða Sigríður Klingenberg.

 

Margt verður til gamans gert á þessu kvöldi sem hefst á fordrykk og snakki frá Ölgerðinni. Glæsileg tískusýning verður frá hönnuðum Ryk og Skugga Donna og sýnt skart frá Sign og einnig verður hársýning og förðun. Júlladiskó ætlar að flagga sínu besta og halda uppi dúndur stuði fram eftir nóttu.

Miðaverð er 2.500.- og húsið öllum opið frá kl. 00:30

Skráning í síma 899 6370 (Þórdís) og 8456625 (Kristín)

Fleiri fréttir