Spennandi námskeið fyrir framtíðar leikara

leiklistarnámskeið fyrir börn.
leiklistarnámskeið fyrir börn.

Leikfélag Sauðárkróks stendur fyrir leiklistarnámskeiði fyrir börn fædd 2011-2016 dagana 11. - 12. ágúst. Möguleiki er á hlutverki í haustsýningu Leikfélagsins fyrir áhugasama þátttakendur að námskeiði loknu.

Námskeiðið verður haldið í Árskóla og verður tímasetning auglýst þegar nær dregur. Námskeiðsgjald er 5.000 kr. og lýkur skráningu á miðnætti 4. ágúst. Leiðbeinandi er Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir.
Skráning fer fram hér:

Til gamans er birt hér fróðleikur um leikfélagið af heimasíðu félagsins: leikfelag550.is:

„Leikfélag Sauðárkróks er eitt elsta áhugamannaleikfélag á landinu. Það var stofnað 13. apríl 1888, þrátt fyrir óáran til sjós og lands, eins og segir í Skagfirzkum annál. Stofnendur voru 16 talsins og markmið félagsins voru gagn og skemmtun. Félagið stóð fyrir leiksýningum um árabil og þá helst í Sýslufundavikunni. Það lognaðist þó smám saman útaf. Samt var alltaf leikið á Sauðárkróki, Stúkan, Kvenfélagið og fleiri sáu til þess. 9. janúar 1941 var Leikfélag Sauðárkróks stofnað á ný í Bifröst. Að þessu sinni voru stofnfélagar 40 talsins. Fyrsta stjórnin var skipuð þeim Eyþóri Stefánssyni, Pétri Hannessyni og Kristjáni C. Magnússyni.” /hmj

Fleiri fréttir