Spes sveitamarkaður

 

Á Laugarbakka í Miðfirði hefur verið Spes sveitamarkaður í sumar og gengið vel. Þar er í boði matur úr héraði og handverk.

Kynningar á völdum matvælum eru í boði um helgar. Áhersla er lögð á hefðbundna matargerð en þó leynist eitt og annað nýstárlegt þar á milli, og geta allir fengið eitthvað við sitt hæfi. Boðið er upp á smakk á flest öllu. Nýjung frá Kjöthorninu á Hvammstanga er hrossaálegg (www.kjothornid.net). Annar nýr vöruflokkur er Sæluostur úr sveitinni, frá Jörfa í Víðidal (www.saeluostur.is).

Handverksmenn og konur leggja áherslu á forn vinnubrögð og þekkingu, og því er að finna jurtalitað band á markaði og flíkur úr því, þæfðar húfur og vettlinga, sérhannaðar töskur sem og peysur þar sem áhrif Jóns Eiríkssonar á Búrfelli gera vart við sig, kindur úr ull (!!), selir, og margt fleira. Stöðugt bætast nýjir vöruflokkar við á Spes sveitamarkaðinn, eins og smyrsl frá Ýr álfavörum á Dæli í Víðdal eða sumarblóm og kryddjurtir í pottum frá gróðurhúsinu að Reykjum í Hrútafirði. Barnatjald er vinsæll liður á Spes sveitamarkaði, þar sem börnum gefst tækifæri til að klæðast víkingabúningi og leika sér að leggjum, skeljum og öðrum gamaldags leikföngum.

Markaðurinn er opinn frá miðvikudegi til sunnudags, kl. 12 – 18, til 14. ágúst. Það er auðvelt að rata á sveitamarkaðinn, aðeins ein beygja frá þjóðvegi.

Til gamans má geta að Spes nafnið á sveitamarkaðinum kemur úr í Grettis sögu, þar sem Spes var kvenskörungur í Miklagarði.

Fleiri fréttir