Spjallfundir FSS

Árlegir spjallfundir Félags sauðfjárbænda í Skagafirði verða haldnir í vikunni. Með á fundunum verður Atli Már Traustason á Syðri Hofdölum sem er í stjórn Landssamtaka Sauðfjárbænda.

Fundirnir verða haldnir sem hér segir:

Miðvikudaginn 29. janúar
Skagasel kl. 14:00
Löngumýri kl. 20:30

Fimmtudaginn 30. janúar
Ketilási kl. 14:00

„Vonumst til að sjá sem flesta,“ segir í auglýsingu FSS í Sjónhorninu.

Fleiri fréttir