Sprenging í aðsókn á sumum stöðum

Fjör í Sólvík. Mynd: Silla Páls
Fjör í Sólvík. Mynd: Silla Páls

Sumarið sem nú er á enda hefur á margan hátt verið hagfellt. Heyskapur hefur gengið vel, berjaspretta er með miklum ágætum og uppskera hvers konar með besta móti, enda þarf að leita nokkuð langt aftur eftir öðru eins tíðarfari.

Sömu sögu er að segja af uppskeru ferðaþjónustunnar, en þeir ferðaþjónustuaðilar sem Feykir hefur haft tal af eru á einu máli um að sumarið hafi verið það afar gott hvað ferðamannastraum varðar. Sumir tala jafnvel um algera sprengingu í þessum efnum. Í nýjasta tölublaði Feykis, sem út kom á föstudaginn, er rætt við vertana á Sjávarborg á Hvammstanga, í Áskaffi í Glaumbæ og Sólvík á Hofsósi.

Fleiri fréttir