Spuni með heimsmet

Stóðhesturinn Spuni frá Vesturkoti fór í ótrúlegar tölur í forskoðun 5v stóðhesta í gærkvöldi er hann hlaut 9,17 fyrir hæfileika og var með 8,43 fyrir sköpulag. Aðaleinkunn hans er því 8,87 sem gerir hann að hæst dæmda stóðhesti í heimi.

Spuni er undan Álfasteini frá Selfossi og Stelpu frá Meðalfelli sem er undan Oddi frá Selfossi og Eydísi frá Meðalfelli. Þetta eru sannarlega glæsilegar tölur og hesturinn einungis 5 vetra gamall. Spuni hlaut 10,0 fyrir skeið, 9,5 fyrir vilja/geð, 9,0 fyrir tölt og brokk. Spuni er korgjarpur glæsigripur, fasmikill og með mikinn fótaburð.

Hrannar frá Flugumýri II fékk einnig góðar einkunnir þó Spuni hafi skyggt á. Hrannar kom næstur á eftir Spuna og fékk 8,28 fyrir sköpulag, 8,55 fyrir hæfileika og aðaleinkunn upp á 8,44. Sýnandi var Þórarinn Eymundsson.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir