Sr. Hallgrímur og Hólar í 400 ár
Á heimasíðu Hóla er vakin athygli á ráðstefnu um prent- og handritamenningu á Íslandi, sem haldin verður heima á Hólum síðustu helgina í mars. Tilefnið er 400 ára fæðingarafmæli sr. Hallgríms Péturssonar og fyrir ráðstefnunni standa Árnastofnun og Guðbrandsstofnun.
Á dagskrá ráðstefnunnar eru tónleikar, erindi, hátíðarkvöldverður og hátíðarguðþjónusta, auk þess sem gestir ráðstefnunnar geta nýtt sér þá ferðaþjónustu sem í boði er á staðnum.
Meðal erinda á ráðstefnunni má nefna erindi Davíðs Ólafssonar sem nefnist „Boðhlaup Jóns Espólín, Gísla Konráðssonar og Sighvats Borgfirðings“ og erindi Terezu Lansing um Þorstein Þorsteinsson og menningararf Hólaseturs.
Dagskrána er að finna á þessari slóð.