Starfsemi Birkilundar færð í húsnæði Varmahlíðarskóla
Staða húsnæðismála Varmahlíðarskóla og leikskólans Birkilundar í Varmahlíð var tekin til umræðu á fundi byggðaráðs Svf. Skagafjarðar í gær. Í fundargerðinni kemur fram að byggðaráð sé á þeirri skoðun að færa eigi starfsemi leikskólans Birkilundar í húsnæði Varmahlíðarskóla og að nauðsynlegum endurbótum á húsnæði grunnskólans verði sinnt.
Í fundargerðinni segir að Gunnsteinn Björnsson formaður samstarfsnefndar með Akrahreppi og Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs hafi komið til viðræðu undir þessum dagskrárlið en viku síðan af fundi.
„Byggðarráð styður ákvörðun og hugmyndafræði fulltrúa sveitarfélagsins í samstarfsnefndinni um að færa starfsemi leikskólans Birkilundar í húsnæði Varmahlíðarskóla og að nauðsynlegum endurbótum á húsnæði grunnskólans verði sinnt,“ segir í fundargerð.
Mikilvægt að horfa til framtíðar
Þá ítrekar byggðarráð jafnframt bókun um málið frá 29. fundi samstarfsnefndar sem haldinn var þann 5. maí 2015:
„Fulltrúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar í samstarfsnefndinni telja mikilvægt að horft sé til framtíðar þegar verið er að meta hvaða leið á að fara varðandi stækkun á rými leikskólans Birkilundar, bæði hvað varðar húsnæði og faglegt starf. Við teljum að með því að færa starfsemi leikskólans Birkilundar í hús grunnskólans skapist tækifæri til að hugsa þessi skólastig sem eina heild og gera ráð fyrir ýmis konar samvinnu og samnýtingu.
Aðkallandi er að fara í viðhald á húsnæði grunnskólans í Varmahlíð og með því að horfa til þess að flytja skólastarf leik- grunnskóla í eitt húsnæði náist fram þrír mikilvægir póstar, lausnir varðandi húsnæði fyrir leikskólann, bætt aðstaða fyrir starfsemi grunnskólans og aðkallandi viðhaldi grunnskólans yrði sinnt.
Nú liggja fyrir teikningar sem unnar voru í framhaldi af athugasemdum sem fram hafa komið frá hagsmunaaðilum leik- og grunnskóla í Varmahlíð á fundum. Fulltrúar sveitarfélagsins leggja áherslu á að ákvarðanir um leiðir og framkvæmdir verði teknar sem fyrst og jafnhliða fari fram kynning og undirbúningur með skólafólki. Einnig verði skoðað hvernig áfangaskipta megi framkvæmdinni,“ segir í bókuninni.