Stefán R. Gíslason hlýtur samfélagsverðlaun Skagafjarðar

Ingibjörg Huld Þórðardóttir afhendir Stefáni R. Gíslasyni Samfélagsverðlaun Svf. Skagafjarðar. Mynd: PF.
Ingibjörg Huld Þórðardóttir afhendir Stefáni R. Gíslasyni Samfélagsverðlaun Svf. Skagafjarðar. Mynd: PF.

Fyrir stundu var upplýst í netútsendingu á heimasíðu Sæluviku hver hlýtur samfélagsverðlaun Sveitarfélagsins Skagafjarðar að þessu sinni en þann heiður fellur Stefáni R. Gíslasyni, tónlistarkennara og kórstjóra í Varmahlíð, í skaut. Stefán hefur verið leiðandi í tónlistarlífi Skagfirðinga um áratuga skeið og gildir þar einu hvort um er að ræða kennslu, kórstjórn eða menningarviðburði þar sem tónlistin hefur verið aðalatriðið og er Stefán alltaf tilbúinn að koma að slíku, sagði Ingibjörg Huld Þórðardóttir, varaformaður atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar sveitarfélagsins, við afhendinguna.

„Undir hans stjórn hafa karlakórinn Heimir, Álftagerðisbræður og kirkjukórar náð miklum vinsældum innanlands sem utan. Hann hefur staðið fyrir fjölmörgum viðburðum m.a. undir formerkjum Sönglaga á Sæluviku. En fyrst og síðast er Stefán einstaklega samfélagslega þenkjandi og telur ekki eftir sér að leggja góðum málefnum lið með sjálfboðnum framlögum. Hinn ljúfmannlegi en metnaðarfulli kennslu og uppeldisþáttur hans með nemendum hefur svo opnað mörgum heim tónlistar svo eftir hefur verið tekið og fjölmargir nemendur hans gert tónlist að atvinnu sinni ekki síst fyrir tilstilli Stefáns,“ sagði Ingibjörg Huld.

Feykir óskar Stefáni til hamingju með heiðurinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir