Steinunn kynnir Jólin hans Hallgríms litla
Eins og sagt var frá í Feyki á dögunum hefur Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur sent frá sér barnabók um Hallgrím Pétursson, Jólin hans Hallgríms. Steinunn er væntanleg í Skagafjörð dagana 2. og 3. desember og mun hún heimsækja skóla í héraðinu og kynna bókina fyrir börnunum.
Fyrri daginn verður Steinunn vestan Vatna, í Árskóla á Sauðárkróki og Varmahlíðarskóla en síðari daginn austan Vatna á Hofsósi og Hólum í Hjaltadal. „Í sumar las ég alla Heimanfylgju fyrir fullorðna og þau börn sem þeim fylgdu, nú sný ég dæminu við og beini orðum mínum fyrst og fremst til barna og þeirra fullorðnu sem þeim fylgja, barna sem eru síðari tíma sveitungar Hallgríms litla,“ sagði Steinunn í samtali við Feyki.
„Ég býð skagfirskum börnum upp á þessa kynningarferð á undan öllum öðrum börnum á Íslandi af því þetta er afmælisár, Hallgrímur fæddist þarna fyrir norðan fyrir 400 árum,“ sagði Steinunn ennfremur.