Stelpurnar dottnar úr keppni
Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastóli mætti liði Keflavíkur í Reykjaneshöllinni sl. sunnudag í Borgunarbikari kvenna. Mikill kraftur var í báðum liðum og um hörkuleik var að ræða, en lokatölur leiksins voru 4-3 fyrir Keflvíkingum.
Keflvíkingar áttu gríðarlega góðan fyrri hálfleik, en fyrsta mark Keflvíkinga kom á 24. mínútu, en það var Margrét Hulda Þorsteinsdóttir sem skoraði það. Á 36. mínútu skoraði svo Aníta Lind Daníelsdóttir og kom Keflvíkingum í 2-0. Á 44. mínútu skoraði Eva Lind Daníelsdóttir fyrir Keflvíkinga, en Ólína Sif Einarsdóttir gerði sér lítið fyrir og minnkaði stöðuna á 45. mínútu leiksins. Staðan í hálfleik 3-1.
Hart var barist í síðari hálfleik og Stólarnir komu sterkir til baka. Á 73. mínútu fékk Tindastóll víti, en Ólína Sif tók það og skoraði með glæsibrag. Þá var staðan orðin 3-2 og mikil spenna ríkti í höllinni. Aðeins þremur mínútum seinna skoraði Kolbrún Ósk Hjaltadóttir fyrir Tindastól og jafnaði stöðuna í 3-3. Það var svo á 90. mínútu sem Margrét Hulda skoraði aftur fyrir Keflvíkinga og lokatölur 4-3 fyrir Keflavík.
Tindastóll datt því úr keppni í Borgunarbikarnum eftir þennan magnaða leik.