Stelpurnar gjörsigruðu upplestrarkeppni Árskóla
Upplestrarkeppni 7. bekkjar Árskóla var haldin í Safnahúsi Skagafjarðar þriðjudaginn 1. febrúar. Dómarar keppninnar voru þau Gísli Rúnar Konráðsson, Sigríður Kristín Jónsdóttir og Unnar Ingvarsson.
Sigurvegarar kvöldsins voru: Bríet Lilja Sigurðardóttir 7. RM, Linda Þórdís Róbertsdóttir 7. RM, Bergþóra Huld Björgvinsdóttir 7. ÞI og Matthildur Kemp Guðnadóttir 7. ÞI. Til vara voru valin Kolbrún Ósk Hjaltadóttir 7. RM og Sigurður Jóhann Árnason 7. ÞI. Þau verða fulltrúar Árskóla í Stóru upplestrarkeppni skólanna í Skagafirði sem fram fer í Húsi frítímans 17. mars.