Stig hjá Tindastóli í baráttuleik

Stelpurnar í Tindastóli fengu lið Völsungs frá Húsavík í heimsókn í gær í 1. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Aðstæður voru allar hinar bestu enda varð leikurinn bæði  skemmtilegur og spennandi. Tindastólsliðið sýndi góðan leik og mikla baráttu og uppskáru stig.

Lið Tindastóls hafði fram að leiknum fengið 4 stig úr sex leikjum og greinilegt að við það sættu þær sig ekki. Þær komu grimmar til leiks og voru líklegar til að skora en Völsungsstelpur voru einnig með sama markmið og það tókst þeim á 19. mínútu þegar Anna Halldóra Ágústsdóttir skoraði fyrir gestina. Skömmu síðar fékk Tindastóll hornspyrnu og upp úr henni náði Rakel Svala Gísladóttir að koma boltanum í markið. Staðan í hálfleik 1-1.

Sama var uppi á teningnum í seinni hálfleik, barátta og marktækifæri á báða bóga en eins og fyrr voru það gestirnir sem urðu fyrri til að skora er Hafrún Olgeirsdóttir skoraði er 67 mínútur voru liðnar af leiknum. Áfram var barist og reynt að skora og áttu Völsungur m.a. skot í stöng. Þegar allt útlit var fyrir að gestirnir myndu fara með öll stigin með sér heim náði Laufey Rún Harðardóttir, sem átti stórgóðan leik, að brjótast fram á ógnarhraða og negldi boltanum í netið þegar einungis þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Lokastaðan 2-2 og eitt stig til viðbótar í sarpinn.

Bjarki Már þjálfari var glaður í leikslok en hefði þó viljað meira. „Ég er ánægður með stelpurnar. Þær gáfu sig alveg 110% í þetta. Við hefðum viljað vinna leikinn en ég er mjög sáttur við frammistöðuna, þær gerðu nákvæmlega það sem lagt var upp með, reyna að taka boltann niður og spila honum og það sást klárlega á leik liðsins að voru að gera það. Ég er mjög sáttur þó ég hefði viljað öll stigin, en er sáttur úr því sem komið var“.

Næsti leikur hjá stelpunum verður næsta föstudag á móti Fjölni á Sauðárkróksvelli og segir Bjarki að hægt verði að sigra í þeim leik ef stelpurnar sýni sömu baráttu og leikgleði og í gær. Leikurinn hefst klukkan 20:00.

Inni á Tindastólsvefnum er hægt að nálgast myndbrot af leiknum.

Fleiri fréttir