Stjarnan mætir í Síkið í kvöld

Fyrsti leikur Tindastóls í Express deildinni í körfubolta verður í kvöld á nýlögðu parketgólfi Síkisins gegn Stjörnunni úr Garðabæ og lýkur þar með sjö mánaða undirbúningstímabili liðsins. Liðinu er ekki spáð góðu gengi af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar en það ætlar liðið ekki að sitja undir.

 

Á Tindastóll.is er ágætur pistill sem allir ættu að skoða og birtist hann hér fyrir neðan.

Spár sérfræðinga fyrir veturinn hafa ekki verið Tindastólsstrákunum í hag, fyrirliðar og þjálfarar spáðu okkur 10. sætinu og Karfan.is gerði enn betur og skellti undirmáls eða undirhunda eða underdogs stimplinum rækilega á ennið á Stólunum þegar okkur var spáð í ellefta og fallsætið. Sem betur fer fyrir okkur þá þarf að leika leikina áður en þeir eru spilaðir og þá er einnig óvenju mikið eftir af tímabilinu til að afsanna spárnar.

Tindastóll kemur með temmilega breytt lið til leiks frá síðasta ári. Erlendu leikmennirnir Kiki, Sean og Fain fóru og komu ekki til baka og stað þeirra voru fengnir Trey Hampton, örvhentur krafttroðari frá Georgia State  og Maurice "Moe" Miller sem mun fá það hlutverk að rekja knöttinn upp völlinn í vetur með skynsamlegum hætti og án þess að missa hann. Miller kemur í stað Eryk Watson sem þótti ekki sýna nægilega góða tilburði við knattrakið og var því sendur til Tékklands.

Hampton hefur notið blíðunnar í Skagafirði síðasta mánuðinn en íslensk yfirvöld tóku sinn tíma í að samþykkja farmiðann fyrir Miller en allar horfur eru á að hann skríði í fjörðinn á föstudagsmorgun og nái a.m.k. að borga sig inn á leikinn.

Þá hefur Keflvíkingurinn Þröstur Leó Jóhannsson ákveðið að söðla um og leika með Tindastól í vetur en Þröstur er bróðir Gauja Jóhanns og þar með sjálfkrafa mágur Önnu Leu Gestsdóttur. Þröstur er drjúgur skratti sem kann að grípa boltann með báðum höndum og á án efa eftir að reynast Tindastólsliðinu mjög góður liðsauki.

Fyrir utan þessa þrjá þá hefur liðið að skipa mikið til sömu leikmönnunum og þjálfara og í fyrra fyrir utan að flestir eru þeir árinu eldri, sem er bara hreint ágætt í sumum tilvikum. Borce, Rikki, Helgi Freyr, Hreinsi, Helgi Rafn, Einar Bjarni og Pálmi Geir verða mættir til leiks og þá hefur Svavar æft af krafti í sumar. Þá eiga eflaust margir ungir og efnilegir strákar eftir að fá tækifæri í vetur enda er efniviðurinn mikill í Skagafirði.

Undirbúningstímabilið hefur gengið þó nokkuð vel, ekkert hlé hefur verið á æfingum en einhverja skipulagningu þurfti á æfingunum þegar skipt var um gólf í Síkinu eins og hvert mannsbarn ætti núna að vita. Síðasti leikur fyrir mót var á móti Snæfell þegar parketið margumrædda var vígt en töluverður haustbragur var á liðinu í þeim leik og ýmislegt sem þurfti að slípa.

Um mótherjana er það að segja að þeim er spáð mjög góðu gengi í vetur, enda voru þeir óumdeilanlega með næstbesta lið landsins í fyrra. Justin og Jovan eru þarna ennþá og í umfjöllun karfan.is um körfuboltaveturinn sagði þetta um Stjörnuna:

"Stjarnan hafnaði í 2. sæti í fyrra eftir úrslitarimmu gegn KR og miðað við önnur lið deildarinnar hafa ekki orðið stórbrotnar breytingar, einhverjar þó. Daníel Guðni Guðmundsson er farinn til Svíþjóðar og Kjartan Atli Kjartansson tekinn við FSu á Selfossi. Þá hafa Garðbæingar endurheimt Sigurjón Lárusson og tvíburarnir Guðjón og Sigurjón því undir sama fána á nýjan leik og munu vafalítið hrella andstæðinga Stjörnunnar í vetur. Vopnaðir íslenskum ríkisborgararétt eru Jovan Zdravevski og Justin Shouse mættir til leiks á ný og Bandaríkjamaðurinn Keith Cothran hefur sýnt lipra takta á undirbúningstímabilinu. Marvin Valdimarsson og Fannar Helgason bætast svo við þessa upptalningu og ljóst að valinn maður er í hverju rúmi í Garðabæ þetta tímabilið. Hinn ungi og efnilegi Dagur Kár Jónsson hefur einnig fengið að spreyta sig undanfarið og fróðlegt að sjá hvernig honum mun vegna í deildinni á tímabilinu."

Þess má þó geta að Tindastóll náði að sigra Stjörnuna í Garðabænum núna fyrr í haust þannig að von er á mjög fjörugum leik. Það er því um að gera að mæta í Síkið og styðja strákana til sigurs í fyrsta leik vetrarins með því að taka undir með Gretti, nýrri sönglaga- og stuðningsmannasveit Tindastóls eða ef fólk hefur ekki mikinn áhuga á körfuknattleik þá er líka hægt að mæta til að njóta þess að horfa á fallegt og vel lagt parket.

Áfram Tindastóll.

Fleiri fréttir