Stjarnan mætti með fjalirnar sínar

Tindastóll fékk Stjörnuna í heimsókn í Lengjubikarnum í gærkvöldi og fjölmenntu stuðningsmenn Stólanna í Síkið til að sýna Bárði Eyþórs, nýjum þjálfara Stólanna og félögum hans, að Skagfirðingar stæðu við bakið á sínum mönnum. Leikurinn var lengstum skemmtilegur enda góð stemning, en í fjórða leikhluta gerðu gestirnir út um leikinn og unnu öruggan sigur, 69-87.

Leikurinn hófst fjörlega og annar bragur á leikmönnum Tindastóls en í fyrstu tveimur heimaleikjunum í vetur. Áhorfendur voru vel með á nótunum, trommuðu og klöppuðu og ekki var annað að sjá en öflug stuðningsmannasveit Tindastóls frá í sumar hafi verið sett í endurvinnslu því þar á bæ eru menn duglegir að syngja o.fl. Stólarnir börðust nú um hvern bolta og höfðu frumkvæðið framan af leik og munaði þar miklu um að Helgi Margeirs mætti til leiks á spariskónum og lék á allsoddi. Stjörnumenn eru hinsvegar færir í flestan sjó og með nógu reynslu innan sinna vébanda til að láta ekki slá sig út af laginu. Áður en fyrsti leikhluti var úti höfðu þeir snúið leiknum við og voru fljótir að nýta sér mistök Stólanna. Staðan 20-28.

Í öðrum leikhluta jókst munurinn á liðunum og virtust heimamenn ekki vera búnir að finna fjalirnar sínar á nýja parketinu í Síkinu. Gestirnir þurftu hins vegar ekkert að leita að sínum fjölum - þær virðast vera staðalbúnaður hjá Stjörnumönnum. Í gær voru Jovan Zdravevski og Keith Cothran illviðráðanlegir og ekki þarf að segja frá hæfileikum Justins Shouse, þeir eru orðnir leiðigjarnir. Staðan í hálfleik var 37-53 fyrir Stjörnuna.

Tindastólsmenn mættu grimmir til leiks í þriðja leikhluta, sýndu góða baráttu og nú voru allir með í sókninni og ekki síður vörninni. Um miðjan leikhlutann gerði Þröstur Leó Jóhannesson 3ja stiga körfu og munurinn kominn niður í 5 stig, staðan 52-57. En þá stigu Stjörnumenn upp og voru ekki lengi að auka muninn á ný, staðan 61-70 fyrir síðasta fjórðung.

Það er síðan skemmst frá því að segja að Tindastólsmenn komust aldrei í takt við leikinn í fjórða leikhluta og gerðu aðeins 8 stig í honum. Stjörnumönnum tókst hins vegar betur upp og var sigur þeirra á endanum öruggur, 69-87.

Stigahæstur í liði Tindastóls var Helgi Margeirs með 17 stig, hann tók líka 5 fráköst en tapaði boltanum 5 sinnum sem var auðvitað verra. Fínn leikur hjá Helga. Maurice Miller gerði 13 stig og átti 5 stoðsendingar og þá var Þröstur líflegur, gerði 13 stig. Trey Hampton átti því miður erfitt uppdráttar í gærkvöldi, Stjarnan spilaði góða vörn á kappann sem sá sjaldan til körfu og átti aðeins 7 skot í leiknum. Vítaskot hans vekja enn nokkra kátínu í Síkinu en varla mikið lengur, eitt af fimm fóru niður í gær. Aðeins sex leikmenn Stólanna gerðu stig í gær og er það ekki nógu gott. Það var aftur á móti jákvætt að leikmenn sýndu góða baráttu og stemningin í Síkinu var fín. Lið Stjörnunnar er gríðarsterkt um þessar mundir og kæmi ekki á óvart þó þeir ættu eftir að ná góðum árangri í vetur.

Stig Tindastóls: Helgi Margeirs 17, Maurice Miller 15, Þröstur Leó 13, Trey Hampton 11, Helgi Rafn 7 og Svavar 6.

Fleiri fréttir