Stjarnan sigraði í kvöld

Stjarnan fór með sigur af hólmi í kvöld er þeir mættu Tindastóli í Síkinu á Sauðárkróki í Express deildinni í körfubolta. Gestirnir tóku strax forustuna og létu hana aldrei af hendi.

 

Maurice Miller sem kom á Krókinn og hitti liðið fyrst í morgun lék nánast allan leikinn og var stigahæstur heimamanna með 22 stig. Næstur kom Svavar Birgisson með 20 stig. Í viðtali við Feyki eftir leik sagði hann að þetta hafi ekki verið leikur varnarinnar og honum ekki litist of vel á leikinn. Honum líst vel á Maurice Miller og telur hann eiga fullt erindi í Tindastólsliðið sem eigi eftir að sýna hvað í þeim býr í vetur. Nú þurfi að koma þeim nýja inn í leikkerfin.

Næsti leikur Tindastóls verður á móti Keflavík syðra á sunnudag og hefst klukkan 19:15

Fleiri fréttir