Stóð sig vel á MÍ í frjálsíþróttum fyrir öldunga
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
28.02.2014
kl. 09.12
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum, fyrir öldunga, fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík 22.-23. febrúar. Þátttaka í mótinu var góð en Theódór Karlsson var eini Skagfirðingurinn sem keppti að þessu sinni. Frjálsíþróttadeild Tindastóls greinir frá þessu á heimasíðu sinni.
Theódór stóð sig mjög vel og sigraði í öllum stökkgreinum í yngsta flokknum, 35-39 ára. Hann stökk 3,40m á stöng, 1,65m í hástökki, 5,91m í langstökki og 11,00m í þrístökki.