Stóðhestaveisla og skagfirsk ræktun

Annað kvöld, 13.apríl, verður blásið til stórhátíðar í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki þegar glæstir og hátt dæmdir stóðhestar ásamt gæðingum úr skagfirskri ræktun koma fram en það eru Hrossarækt ehf og Hrossaræktarsamband Skagafirðinga sem standa að sýningunni.

Lagt er upp með að í bland við hæst dæmdu stóðhesta landsins sýni Skagfirðingar úrval úr eigin ræktun en eins og allir vita eru Skagfirðingar rómaðir hestamenn og þekktir um land allt fyrir gleði, söng og einskæra gestrisni. Það er því tilvalið fyrir allt áhugafólk um hestamennsku að taka daginn frá og heimsækja Skagafjörð og innanhéraðsfólk að mæta í reiðhöllina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir