Stóðu sig vel á Stórmóti ÍR í frjálsíþróttum

Stór hópur ungmenna frá UMSS keppti á Stórmóti ÍR í frjálsíþróttum sem fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík um sl. helgi. Samkvæmt heimasíðu Tindastóls var mótið mjög fjölmennt, með nálægt 800 keppendum í allt að 60 greinum. Skagfirðingarnir stóðu sig vel og unnu til 18 verðlauna, 4 gull, 8 silfur og 6 brons.

Verðlaunahafar UMSS voru:

Ísak Óli Traustason (16-17) sigraði í hástökki og þrístökki, varð í 2. sæti í 60m grindahlaupi og 3. sæti í langstökki.
Sæþór Már Hinriksson (12) sigraði í langstökki og varð í 3.-4. sæti Í hástökki.
Björn Margeirsson sigraði í 1500m karla.
Fríða Ísabel Friðriksdóttir (14) varð í 2. sæti 60m, 200m, 60m grind. og langstökki.
Berglind Gunnarsdóttir (11) varð í 2. sæti í kúluvarpi.
Jóhann Björn Sigurbjörnsson (16-17) varð í 2. sæti í 200m.
Sveinbjörn Óli Svavarsson (15) varð í 2. sæti í í stangarstökki.
Þorgerður Bettína Friðriksdóttir (16-17) varð í 3. sæti í 60m og 400m.
Gunnar Freyr Þórarinsson (13) varð í 3. sæti í kúluvarpi.
Haukur Ingi Marinósson (14) varð í 3. sæti í kúluvarpi.

 

Fleiri fréttir