Stólarnir alveg sorglega slappir í kvöld
Þeir voru nokkrir stuðningsmenn Tindastóls sem höfðu á tilfinningunni að strákarnir myndu rífa sig upp í kvöld og bera sigurorð af liði ÍR í Síkinu. Það var því ansi þungt í þeim mörgum eftir leik því það verður að segjast eins og er að Stólarnir voru langt frá sínu besta í kvöld og nánast hálf sorglegt að fylgjast með leik liðsins í síðari hálfleik. ÍR-ingar höfðu betur 70-81 eftir að Stólarnir höfðu leitt 37-32 í hálfleik.
Leikurinn fór vel af stað hjá Tindastólsmönnum sem voru að spila fína vörn og unnu hvern boltann eftir annan. Stólarnir höfðu því frumkvæðið í fyrsta leikhluta en því miður misstu þeir af tækifærinu til að skapa sér gott forskot með því að klúðra alltof mörgum álitlegum sóknarfærum. Að loknum fyrsta leikfjórðungi var staðan 16-13 og hafði Trey Hampton verið seigur, setti niður níu stig og þar af þrjú víti í fjórum tilraunum. Lið ÍR komst yfir fljótlega í öðrum fjórðungi en Svabbi átti flottan sprett upp úr því, gerði 7 stig fyrir Stólana og jafnaði 23-23. Liðin skiptust síðan á um að hafa forystuna en Stólarnir kláruðu leikhlutann vel og voru 5 stigum yfir í leikhléi, 37-32.
Síðari hálfleikur var í heildina dapur hjá heimamönnum sem náðu engum takti í leik sinn. Sóknin var stirð, boltinn gekk hægt og illa og menn voru sífellt að hika í færum fyrir utan 3ja stiga línuna. Stólarnir tóku aðeins 13 3ja stiga skot í öllum leiknum og settu aðeins niður 3 en ÍR-ingar settu niður 8 í 23 skottilraunum. Kanarnir í liði Tindastóls hafa verið frekar klénir hingað til en voru hreinlega lélegir í kvöld. Nema hvað; lið ÍR kom sér hægt og bítandi inn í leikinn og náði yfirhöndinni fyrir síðasta fjórðung en staðan var 54-58 að loknum þriðja leikhluta. Síðasti fjórðungurinn var bara dapur að hálfu Stólanna sem náðu alls ekki að gera gestunum nógu erfitt fyrir. ÍR náði fljótlega um 10 stiga forystu en þegar rúm mínúta var eftir minnkaði Þröstur Leó muninn í sex stig, 67-73, og síðan unnu Stólarnir boltann og áttu þess kost að minnka muninn enn frekar en glopruðu boltanum frá sér um leið, brutu síðan af sér og munurinn orðinn 8 stig. Lokatölur sem fyrr segir 70-81.
Leikurinn í kvöld var lítil skemmtun. Stólarnir voru skárra liðið framan af sem segir kannski lítið því ekki er lið ÍR skemmtilegt. Varnarleikur ÍR var góður í síðari hálfleik en sóknarleikur Stólanna hræðilega stirður lengstum. Og þegar svo virðist sem leikmenn séu hreinlega hræddir við að skjóta á körfuna þá er ekki von á góðu. Það mátti glögglega heyra á stuðningsmönnum Tindastóls að leik loknum að þolinmæðin gagnvart könunum var á þrotum – það verður því spennandi að fylgjast með hvað gerist á næstu dögum.
Stig Tindastóls: Trey Hampton 18/9 fráköst, Helgi Rafn 16/6 fráköst, Maurice Miller 10/12 fráköst, Svavar 9/7 fráköst, Þröstur Leó 8, Rikki 8, Helgi Margeirs 1.