Stólarnir fagna meistaratitlinum í 3. deild - myndband
Tindastólsmenn gulltryggðu sér meistaratitilinn í 3. deild síðastliðinn laugardag eftir öruggan sigur gegn Einherja frá Vopnafirði. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá brot úr leiknum og innilegan fögnuð leikmanna þegar bikarinn var afhentur í leikslok.
Nánari lýsingu og myndir frá leiknum má sjá í frétt sem birt var á Feyki.is síðastliðinn laugardag. Myndbandið tók Eysteinn Guðbrandsson en Feykir þakkar fyrir leyfi á myndbirtingunni.